<3
bestu vinkonurnar!!
Ég er svo heppin með fjölskyldu en þau ætla að fara með mig til Rómar 29. des og ég hlakka ekki smá til og líka til Pisa i lok janúar svo það verður sko ferðast eftir áramótin, ótrúlega gaman en einnig fer ég með skólanum til London í mars eða apríl. Svo ætla ég að fara i skiptiviku en þá getur maður valið borg eða stað á Italiu og verið i viku hjá annari fósturfjölskyldu og ferðast :):)
Ég læri ítölsku á fullu og er byrjuð að skilja nánast allt og það er mjög mikill munur á því að vera farin að skilja!! en að tala er ég ekki komin eins langt með en þetta kemur allt. Í skólanum koma upp skyndipróf eða ég hef ekki skilið að það væri próf í vændum og svo er þeim skellt á og þá bulla ég bara eitthvað og það kemur mjög skrautlega út en ég er t.d. búin að taka eðlisfræðipróf og þurfti að tala um atóm á ítölsku og svara allskonar spurningum. Þetta gekk samt nokkuð vel en guð í stærðfræði og heimspeki skil ég ekki neitt í en samt segja kennararnir að mér gangi bara vel iskólanum haha
Svo verða þetta fyrstu jólin án fjölskyldunnar en það verður bara gaman að fá að upplifa jól í öðru landi og sjá hvað menningin er öðruvísi. Búin að fá pakka frá mömmu og pabba og systrum pabba og hlakka ekki smá til að opna
Ég bið fyrir kveðju til allra og eigið góð jól.
Kvedja fra Sardiniu
p.s 16 stiga hiti eda rigning :)



